...Nú ertu eitthvað að villast...
20.12.2007 20:24:32 / Arna Silja

Jólafrí

Halló!

Ég er búin í skólanum (fyrir svolítið löngu síðan, eða 4 desember) og náði öllum prófunum!! :D

Félgasfræði 313 - 7
Íslenska 613 - 7
Íþróttir 103 - 10
Náttúrufræði 123 - 5:!::!::!::!::!::haha:
Saga 303 - 6
Sjónlistir 103 - 8
Textílhönnun 103 - 6
Skólasókn - 10:$

Ég er nú bara þó nokkuð sátt með þetta og þungu fargi af mér létt því að ég var komin með tvöfaldar axlir og stanslausan hausverk á tímabili út af stressi!

Er að vinna á Reyðarfirði núna og vá, ég er að vinna með svooo spes fólki. Mætti halda að ein þeirra sé með alsheimer því hún er búin að spyrja mig um það bil 300þúsund sinnum um atvinnuhag á Stöðvarfirði og hvernig sé að búa þar, þó að ég sé búin að öskra framan í hana mörgum sinnum að ég eigi alls ekkert heima þar!:P Svo er ein sem er voða ósátt við lífið.. getur ekki hætt að tuða um hversu leiðinlegt sé í vinnunni og hvað þetta sé mikil þrælkun, svo hreytir hún einhverjum ónotum framan í mann ef að hún er beðin um einhvern skapaðan hlut, sennilega á túr eða breytingarskeiðinu eða eitthvað!! Flest allar hinar eru Pólverjar og meirihluti þeirra skilur ekki orð af því sem verið er að segja, hehe! Allt er þetta samt fínasta fólk;D Svo var verið að opna nýtt mötuneiti í alcoa öllum til mikillar hamingju því greys fólkið er búið að lifa á sómasamlokum og jógúrt allan tímann og fær klígjutilfinningu við það eitt að hugsa um sómasamlokur og svo þegar við hjá Fjarðaþrifum komum með nýjar samlokusendingar upp í eldhús heyrist bara eitt stórt andvarp! hehe! ;P Ég er samt að hætta á morgun og á ábyggilega ekki eftir að nenna að vinna meira í jólafríinu mínu þar sem ég er bókstaflega að deyja úr leti, ég ætla samt að sjá aðeins til með það...

oo hvað ég hlakka til jólanna, ég hlakka svo mikið til að borða rjúpur! Pabbi hefur að undanförnu verið að leggja mikla áherslu á veiðikunnáttu mína og kvatti mig óspart að drífa mig á námskeið til þess að ég geti fengið mér byssuleyfi! mér finnst það frábær hugmynd og ég er að hugsa um að láta bara verða af því, að minnsta kosti fyrir næstu jól svo að ég geti farið á rjúpnaveiðar með galma ;P sjáiði þetta ekki alveg fyrir ykkur?:D

Já og eitt enn. Maggi ætlar til Reykjavíkur eftir áramót!! Hann er búin að fá starfssamning hjá Hótel Sögu og ætlar hann að fara í kokkanám! Ég samgleðst honum mjög en hólí mólí!!! ég á eftir að fara yfir um og það endar sjálfsagt með því að ég fari til hans suður. Ég á Egilsstöðum og hann í bænum? niii það gengur nú bara ekki;S

En nú er ég hætt í bili, ég blogga aftur fljótlega ef ég fæ komment - (í fleirtölu)

-út8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 15:46:23 / Arna Silja

:)

Ég var að finna alveg priceless myndir á netinu!!

kennslustund.jpg picture by arnasilja

fallegirsvipir.jpg picture by arnasilja
Ég og mamma sem lítur út fyrir að vera 20 árum eldri en hún er núna! :o he, he!
gngutr.jpg picture by arnasilja

matreisla.jpg picture by arnasilja
Ooo hvað allir eru sætir og saklausir þarna!! :$

Já, og nú á ég bara skilið hrós fyrir að blogga með svona stuttu millibili!


» 7 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 00:25:17 / Arna Silja

hellú

Sælt veri fólkið. 1. des var á föstudaginn og það var alveg óborganlegt fjör það kvöld, ég setti meira að segja nokkrar myndir inn frá ballinu og borðhaldinu..

Ég nenni samt engan veginn að blogga núna.

P´s. JESÚS! það er svooo lítið eftir af skólanum


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 21:08:56 / Arna Silja

5 ár!

Úff hvað ég er dugleg að blogga!!

 ÉG OG MAGGI ERUM BÚIN AÐ VERA SAMAN Í 5 ÁR Í KVÖLD! :) <3

vildi bara deila þessu með ykkur :O8) 


» 6 hafa sagt sína skoðun

24.10.2007 12:27:48 / Arna Silja

Einmitt

jájájájájá... er ekki bara kominn tími á blogg?

Önnin rúmlega hálfnuð og ég ekki ennþá búin að sparka Magga út...nei djók :) Ég verð bara í einu lokaprófi því að allir hinir áfangarnir eru símatsáfangar. Búin 4. desember, alveg ótrúlega heppin og eflaust mjög margir sem hata mig fyrir það (Maggi?) ha ha..

Ég, Elva og nokkrir fleiri erum næstum því búin að ákveða að fara á Pál Óskar á föstudagskvöldið, það var algjör snilld síðast þegar ég fór að ég get eiginlega ekki sleppt því að fara núna, eða hvað?? niii...

Ok, ég hef ekkert meira að segja í bili, en ég reyni að blogga fljótlega EF ÞIÐ VERÐIÐ DUGLEG AÐ KOMMANTA LITLU KRAKKAANDSKOTARNIR YKKAR!!!!!!!

Bless:haha:8)


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.08.2007 00:37:15 / Arna Silja

Undur og stórmerki

heyrðu blogglöngunin poppaði bara allt í einu upp hjá mér sisvona, enda hef ég nú ekki bloggað langa lengi

það hefur margt margt gerst síðan síðast, ætli ég punkti ekki það helsta niður

  • Var að vinna hjá alcoa/bechtel í aaallt sumar, sem var ágætlega borgað en virkilega þreytandi til lengdar
  • Ég, Einar og Mikki fórum á ball til Egilsstaða í sumar, frábært ball og virkilega skrautleg ferð þar sem að það tæmdist út af vatnskassanum í bílnum mínum á heimleiðinni og viftureimin fór af í heilu lagi takk fyrir!8| en Nína, sem fékk far með okkur niðureftir sem betur fer hringdi í Agnar sem hafði keyrt framhjá okkur svo þetta reddaðist. Þeir sem ekki vita er bíllinn í toppstandi og ekki við öðru að búast af þessari elsku
  • Fórum á Franska daga, það var ágætt og svosem ekki neitt meira að segja um það nema Hófí, Elva og Mikki dissuðu ballið!
  • Ég, Maggi og hans fjölskylda fórum í brúðkaup til Dalvíkur fyrir mjög stuttu sem var akkúrat á fiskideginum mikla. Ég hafði ekki hugmynd um hversu stór þessi hátíð er orðin. Ég hélt þetta yrðu bara fáeinar hræður en nei! Dalvík var ein tjaldmannabúð og hvergi hægt að keyra eða leggja. að sjálfsögðu verð ég að láta nokkrar myndir fylgja þessu bloggi, gengur ekki annað
    DSC00015.jpg picture by arnasilja
    Brúðhjónin, Nimm og Stefán
  • Austfjarðartröllið var um helgina og Sonja mín kom og ég, Maggi og hún skemmtum okkur konunglega ásamt öðrum Breiðdælingum og austfjarðartröllum;) og já, ég held ég láti bara myndirnar tala sínu máli en myndavélin fékk að vera meðferðis í þetta sinn
    Picture096-1.jpg picture by arnasilja
    Ég og Snappfeisið (Öðru nafni Hektor)
    Picture161.jpg picture by arnasilja
    Sonja verulega undrandi og ég að þvælast útí horni
    Picture111.jpg picture by arnasilja
    Sjarmatröll kvöldsins eða bara alltaf eða hvað?
    Picture081.jpg picture by arnasilja
    oooog þessi tengist víst austfjarðatröllinu ekki neitt en ég varð samt að láta hana fylgja með fyrst hún er svona fyndin:haha:

Svo er maður bara kominn í skólann blessaðan. Frysti dagurinn var í dag, ósköp rólegur. Í fyrsta sinn í lífinu er ég þokkalega ánægð með stundartöfluna mína. Ég verð í 19 einingum, á miðvikudögum er ég bara í skólanum til 11 og föstudögum er ég í einum tíma til klukkan 11! hversu ljúft? en ég fæ samt að gjalda fyrir það á fimmtudögum því þá er ég alveg til 5..... Og jújú, ég er víst að farað verða svolítið artýfartý í vetur. ég er skráð í 2 listaáfanga sem ég er bara nokkuð sátt við. Ég er líka skráð í náttúrufræði og ég veit bara alls ekki hvernig ég á að fara að því að yfirstíga það, manneskjan sem veit ekki neitt í sinn haus í sambandi við stærð- og efnafræði! Kvíði langmest fyrir þeim áfanga ég held hann verði heinasta helv...
en ég ætla ekki að farað þreyta ykkur meira með þessu tali mínu með skóla, áhyggjur og svo framvegis.

EN hei! komum í leik sem við höfum aldrei farið í áður:evil: allir þeir sem skoða síðuna VERÐA að kvitta eða commenta í þessu bloggi því ég vil endilega sjá hverjir kíkja :) samþykkt?8|

P´s. Afmælisbörn þessa mánaðar eru Maggi, Nína og Hólmfríður, til hamingju með það sykurpúðar:lol: :*


» 8 hafa sagt sína skoðun

25.06.2007 22:00:37 / Arna Silja

...

Loksins mana ég mig upp í það að blogga. Ég ætla að byrja á því að segja það að ég náði öllum prófunum!

Enska 503 - 7
Íþróttir 301 - 9
Landafræði 103 - 5
Saga 203 - 6
Sálfræði 103 - 6
Uppeldisfræði 103 - 7
Þýska 403 - 6
Skólasókn 108|8)

Ætla að láta nokkrar skemmtilegar myndir hérna frá önninni :) Eins og þið kannski vitið þá komu Agnes og Andri í ME eftir áramót og leigðu herbergi uppí sveit nálægt Egilsstöðum en áttu samt tæknilega séð heima hjá okkur Nínu samt! Þannig við höfuðm það mjög skemmtilegt saman í vetur eins og þið munið sjá...

Hver man ekki eftir því þegar Andri ofnotaði brúnkukremið?
CIMG3378.jpgPicture002.jpg
Fyrir Eftir!!!!!!!!!

STÚDÍÓ 13:
Picture058.jpg
Andri og Nína kát
Picture041.jpg
Agnes AÐ MÁLA ANDRA!!
Picture115-1.jpg
Nína og Agnes tígrar... wrarr

Ég tók þátt í smá myndakeppni á opnum dögum í skólanum og lenti í 3. sæti.
Reykingargeramenngetulausa.jpg
Reykingar gera menn getulausa
Neikvkyrrstaa.jpg
Slæmar matarvenjur JÓHANN!! :)
Heimurofskynjunarskumfkniefna.jpg
Heimur fíkilsins
Slmhriffengis.jpg
Slæm áhrif áfengis
Fkniefnaneysla.jpg
Fíkniefnaneysla (ef þið eruð að velta því voðalega mikið fyrir ykkur þá er þetta bara íbúfen og flórsykur :)
Jói og Nína björguðu náttúrulega alveg þriðja sætinu fyrir mér og eiga stórt hrós skilið :P

Fórum í smá svaðilför eitt kvöldið á fáskrúðsfjarðarströnd til þess að skoða franska spítalann, brrr
Picture037.jpg
OF góð mynd af Magga og Marra:D
Picture049.jpg
spúkí

Ooog já, Maggi lét Danna krúnuraka sig og ég varð bara virkilega ánægð með afraksturinn.
maggiogarna.jpg
........................................................................................:$;)

Og þetta var eiginlega allt sem gerðist á önninni í mjög stuttu máli. Ég fór beint í sauðburð í Berufrjörð eftir að ég kom úr skólanum. Eignaði mér 2 litla hrúta og þeir heita Tómas og Bob Marley. Var þar í sirka tvær vikur og fór að vinna á Reyðarfirði!! Ég bý sem sagt á Reyðarfirði núna hjá Magga og er að vinna á alcoa svæðinu við að skúra og þrífa klósett! nett. Þetta virðist fremur áhættusöm og hættuleg vinna því að um leið og ég byrjaði að vinna var mér afhent neongul úlpa svo ég mundi nú örugglega sjást, hjálmur, hlífðargleraugu og skór með stáltá! Hehe, dálítið fyndið. Það er ágætt að vera hérna á Reyðarfirði nema hvað ég sakna Breiðdalsvíkur frekar mikið. Ég ætla líka að hætta að vinna nokkrum dögum áður en skólinn byrjar og fara smá heim og njóta þess að vera þar:)
En þar sem ég er búin að vera svo dugleg að blogga þá er ég að pæla í að fara að sofa í hausinn á mér, langur vinnudagur framundan.

Muniði svo það er til eitthvað sem heitir gestabók og komment. Bless elskur, þangað til næst


» 6 hafa sagt sína skoðun

07.05.2007 13:36:15 / Arna Silja

Lokapróf

...............

Kvíði

Spenna

Stress

Námsleiði

Þreyta

Hugarangur

Bókaflóð

Skapvonska

Orkudrykkir

Tilhlökkun

Vonarglæta

Gullfiskaminni

pirringur

Kaffi

.. Svo margir hlutir og tilfinningar sem fylgja lokaprófum. Ég verð svooo fegin þegar þetta verður búið :D

P´s. Ég varð 19 ára 2. maí 8) (takk fyrir þessa góðu súkkulaðisveppaköku Eiríkur :P8|:$:!: , og Maggi takk fyrir skemmtilega kvöldstund á Cafe Nilsen.. ohh svo góður matur!)

P.p´s. Þórdís varð 19 ára 4. maí! Til hamingju!

P.p.p´s. Gríma varð 18 ára í fyrradag, til hamingju!


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.03.2007 21:52:11 / Arna Silja

úff úff

Halló!
Ég ætla mér aðeins að blogga um Reykjavíkurferðina og kannski aðeins fleira. Ég kann bara ekkert að blogga lengur því það er svo langt síðan síðast, en ég reyni! Allavega þá ákváðum við að halda okkur vakandi svolítið lengi svo það yrði auðveldara að sofa í rútunni til Reykjavíkur svo við Maggi, Siggi og Þórhallur horfðum á Family guy langt fram eftir, svo skruppum við í heimsókn til Ísaks, Begga og Þórðar, þeir höfðu hreiðrað um sig í herberginu hans Ísaks og sötruðu bjór í rólegheitunum en svo kom húsfreyjan upp um þá svo að þeim var bannað að vera í skólanum í viku eða svo... obbobobobb!8|

Ferðin til Reykjavíkur var mjög þreytandi og köld! Topplúgurnar fuku báðar upp rétt hjá Djúpavogi og rútubílstjórinn gat bara lokað þeirri fremri og ég og Maggi vorum einmitt svo stálheppin að sitja hjá opnu topplúgunni svo að við vorum bara í roki alla leiðina. Topplúgur eru BARA vesen! Við gistum hjá frændfólki mínu sem var alveg rosalega fínt. Tommi sótti okkur á BSÍ og við fengum okkur að borða og svo fórum við beint á gettu betur:
Picture005.jpg
Gettu betur
Picture009.jpg
Maggi og ég, aðal klappstýrurnar :P

Eftir keppnina gerðum við ekki neitt, fórum svo gott sem heim að sofa. Svo fórum við í smáralindina og kringluna daginn eftir, hittum marga þar, Þórð, Sigga, HÓFÍ;D og fleira gott fólk
Picture019.jpg
Hófí sæt :)

Svo fórum við öll í bíó og ætluðum að taka stædó í álfabakkann þar sem Nína og Agnar voru að bíða eftir okkur en við lentum í smá hrakningum og misstum af stædónum og biðum inní strædóskýli í hálftíma eftir að hann kæmi aftur:
Picture027.jpg
Kalt kalt kalt...

Við fórum á myndina 300, ótrúlega góð og vel gerð mynd, það vottaði meira að segja fyrir smá húmor inn á milli. Svo afrekaði ég svolítið sem ég hef aldrei gert áður, fór með Magga, Nínu, Þórði, Agnar og Sigga í keilu. Heldur betur klaufalegt atriði, en það kom smátt og smátt :)
Picture032.jpg
á leið í keilu
Picture034.jpg
Diskókeila
Picture049dfs.jpg
Maggi var nú soldið flinkur.. hihi

Morguninn eftir lögðum við af stað heim og það var mjög pirrandi fullt fólk í rútunni. En þegar það loksins sofnaði krotuðu einhverjir framan í það, því miður á ég ekki mynd af því :') Það var brjálað veður þegar við vorum komin framhjá Freysnesi og Höfn þannig að við þurftum að stoppa á Djúpavogi. Fyrst ætluðum við bara að bíða og sjá hvort veðrið mundi ekki skána en það var ekkert á leiðinni að skána svo að við þurftum að gista, ég og Maggi fengum gistingu hjá Jóni Einari og svo var fólk bara ýmist í Íþróttahúsinu, á hótelinu eða hist og her. Allir voru hæstánægðir með það þó ótrúlegt sé:
vala.jpgPicture077.jpg

Picture076.jpgPicture075.jpg

Picture073.jpgPicture062.jpg

johnyboy.jpg
Nema Siggi::
Picture069.jpg
En hann tók fljótt gleði sína á ný:
Picture074.jpg

Ég hef lítið meira að segja, nema það að ég ætla pottþétt heim um næstu helgi af því ég hef ekki farið heim 2 helgar í röð, fryst barkinn og svo gettu betur, gott að koma heim! Svo er páskafríið að nálgast og ég fékk nærri því andateppu þegar ég sá að vorprófataflan væri komin upp, þá áttaði ég mig á því hvað er ofsalega stutt eftir af skólanum, alltof mikið stress, en samt svo gott! ég er samt búin svo seint í prófum minnir 12 maí eða eitthvað svoleiðis. Og svo veit ég ekki neitt hvar ég ætla að vinna í sumar?!? einhverjar uppástungur?

en ég er hætt í bili, læt að lokum eina sæta mynd af okkur Magga síðan á Barkaballinu :)
of50590442.jpg
Farin að læra :)
P´s: ég Læt svo afganginn af myndunum inn þegar photobucket hættir að vera tík8|8)


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.02.2007 02:06:17 / Arna Silja

Ekki minn dagur.. og rúmlega það

Smá blogg um hrakfarir og kjánalæti!

Dagurinn í dag er örugglega einn sá óheppilegasti sem ég hef upplifað! Ég átti að fara í 20% próf í landafræði í morgun og las þess vegna mjög lengi frameftir í gærkvöld, og svo svaf ég yfir mig í prófið!! alveg frábært...

Svo var ég inní herbergi og var að þrífa eitthvað box með loki og ég setti heitt vatn í það og hristi það svolítið og opnaði og þá bara gusaðist allt yfir mig og allir að hlægja að sjálfsögðu:S hehe

Ég gekk útí skólahús í morgun og sá Agnesi þar sem hún var að sníða einhvern kjól á litlu frænku sína og ætlaði að labba niður stigann til hennar en þá bara pomms! beint á rassinn niður stigann!

Ég fór í munnlegt þýskupróf sem gildir inn í lokaeinkunn og ég þarf að taka það aftur því mér gekk svo illa því ég gat ekkert lært undir það því ég var allan tímann að læra undir landafræðiprófið sem ég btw svaf yfir mig í..!

Kristján bað um far á Breiðdalsvík og við lögðum af stað og það gekk allt vel þangað til við komum í Hvalnesskriðurnar sem eru skriðurnar á milli Stöðvarfjarðar og Breiðdalsvíkur og það vantaði bara örlítið uppá að við kæmumst í símasamband, en þá sprakk dekkið! og ég og Kristján löbbuðum í símasamband í þessari líka frábæru rigningu og hringdum í bróðir hans Arnór sem kom og hjálpaði okkur ;)

Það eina góða í dag var að það er löng helgi og ég fór heim:) Ég og Nína vorum duglegar og fórum í ræktina þegar ég loksins komst til Breiðdalsvíkur en því miður gátum við ekki farið í heita pottinn eins og við höfðum ætlað okkur því hann var bara kaldur8|
En HEI.. mér dettur eitt í hug til þess að lífga aðeins upp á þetta blogg! Okkur Kötu leiddist örlítið uppá herbergi í gær á meðan allir voru einhversstaðar úti og við bjuggum til sögu, Eða Kata skrifaði söguna og ég bætti lýsingarorðum inní, alveg hreint bráðskemmtilegur leikur :O
og hééér er afraksturinn::::::::

Það var einu sinni fallegur maður sem ákvað að fá sér að r***. Hann leitaði um allt að krumpaðri konu en það eina sem var í boði var vangefin kona. En það vildi nú svo til að úr þessum drætti varð krakki, hann var kjánalegur. Þegar krakkinn kom í heiminn var búið að kaupa fullt af appelsínugulum fötum af horuðu konunni sem átti ljótu búðina á horninu. Maðurinn og konan ákváðu að fyrst þau væru komin með krakka væri best að gifta sig og héldu frábært brúðkaup. Síðan fluttu þau í asnalega íbúð og nágrannarnir voru misskakkir. Karlinn fyrir ofan þau var t.d. blóðugur og konan hans dónaleg svo þau pössuðu ágætlega saman, fyrir neðan þau bjuggu svo unglingar sem voru alltaf með köld partí. Stundum kíkti karlinn en þá gerði hann sig skorpinn því að hann hélt að það mundi heilla konurnar, að vísu féll ein drullug miðaldra kona fyrir þessu en maðurinn þorði ekkert að gera því þá yrði konan hans græn.

(Smá viðbót)

Nína: smekkleg
Agnes: hörð
Andri: ljóshærður
Tommi: fljótur
Agnar: konunglegur
Maggi: mongólítalegur
Kata: hlý
Arna Silja: snobbuð!?!? hmm8|
Vignir: dramatískur
Arnór: sljór
Irma: barnaleg

Sorry Kata en ég varð bara að deila þessari sýrusögu og ranghugmyndum með fleirum :) (tók þetta af www.blog.central.is/blikk- :))

En ég ætla að farað segja þetta gott í bili og fara bara að sofa
Ljúfa drauma elskur 8)

P´S. Maggi, ég kem og ræni þér um helgina!!! -_-


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.01.2007 02:35:01 / Arna Silja

Humm..

Hver skal víkja!!?!!?

Í gær vorum við Maggi við að svífa inn í hið yndislega helgarfrí okkar og planið var að fara til Reyðarfjarðar. Við fórum út í bíl og ég startaði bílnum og bensíngjöfin festist inni okkur til mikillar skelfingar og ég svissaði strax af bílnum. Eins gott að það gerðist ekki á meðan við vorum á ferð. Ég kjarkaði mig samt upp og startaði bílnum aftur og eftir smá búðarráp lögðum við af stað til Reyðarfjarðar. Við vorum komin nokkuð út fyrir Egilsstaði þegar bíllinn byrjaði skyndilega að hægja á sér og að lokum drapst alveg á honum. Ég kom honum í gang aftur og Maggi blótaði honum og talaði stanslaust um að ég ætti að fjárfesta í nýjum bíl og fara með þennan á haugana og eftir smá röfl drapst aftur á honum þegar við vorum komin upp miðjan dalinn, sem betur fer náði ég samt að koma honum í gang aftur og Maggi sem var orðinn heldur pirraður á þessum látalátum blótaði bílnum enn meira í þetta sinn og talaði sífellt meira ruslahauga og nýjan bíl og þess háttar og aftur lét bíllinn eins eftir smá keyrslu. Í þetta sinn bað ég Magga um að þegja (því ég held að blótsyrði í garð bílsins fari ekki vel í hann) og hann þagði og lagði sig og vitiði hvað?? Við komumst alla leið niður á Reyðarfjörð vandræðalaust! er það ekki alveg merkilegt? eða öllu heldur ógnvekjandi? æ ég veit það ekki. Ég held einfaldlega að þeim sé alls ekki vel við hvern annan? hvað haldið þið? hvorum þeirra á ég að fleygja? hehe.. ok þetta var Djók! :lol:

En jæja, við Maggi fórum allavegana að passa litla frændfólkið mitt fyrir gömlu (systur hans pabba og hennar mann) þegar við vorum komin til Reyðarfjarðar eftir mikið vesen. Frænka mín Kristborg a.k.a. Krissa sem við vorum að passa fyrir entist ekki lengi á þessu Þorrablótsballi þar sem danshljómsveit Friðjóns, held ég að hún heiti, var að leika fyrir dansi. Hehe.. svei mér þá ef þeir eru ekki búnir að vera með sama prógramm í töttögu ár eða svo! allavega sagði Andrés teingdó það.. anyways þá lagði ég af stað heim á Breiðdalsvík í morgun og bíllinn auðvitað skotgekk þar sem Maggi var ekki nálægur :) Ég held samt að þetta blogg sé komið út í algjört rugl og þvaður og nóg komið af andsetnum bílum.

Bless í bili elskur, góða nótt 8)


» 7 hafa sagt sína skoðun

03.01.2007 02:07:04 / Arna Silja

....

Hæ og gleðilegt nýtt ár... já og gleðileg jól þótt seint sé :)

Loksins lufsast ég til þess að blogga. Það væri nú aldeilis gaman ef blog.central.is léti einu sinni að stjórn, held ég sé búin að reyna að láta þetta blogg inn að minnsta kosti 3svar sinnum inn! Ætli ég byrji ekki bara á því að segja að ég náði öllum prófunum með alveg ágætis einkunnum, mér gekk miklu betur en ég hafði búist við! Eftir próf fór ég auðvitað heim til mín í jólafrí og gat ekki sofið fyrr en ég fékk allar einkunnirnar mínar, síðan þá er ég búin að hafa það bara mjög gott.
Jólin eru búin að vera frábær, hlakka samt ekki til að stíga á vigtina, geri nánast ekki annað en að borða og liggja 8| Áramótin voru ágæt, samt ekki eins og við Maggi höfðum ætlað okkur, hann kom til mín og við fórum í fjölskylduboð, fórum á brennuna, horfðum á flugeldasýningu, spiluðum, hofðum á skaupið sem mér fannst nú hálf kjánalegt, eða kannski ekki kjánalegt, öðruvísi en venjulega bara, sprengdum upp nokkra flugelda, svo ætluðum við yfir á Stöðvarfjörð í partý þar en klukkan var orðin svo margt svo margt að við hreiðruðum bara um okkur uppí sófa og horfðum á mynd:haha:

En já, yfirlit væri skemmtilegt er það ekki?

  • Náði öllum vorprófunum:D
  • Fór strax að beita eftir að ég komst í sumarfrí ásamt nokkrum Pólverjum og Jóa sem gafst upp eftir ... ég veit ekki alveg hvað langan tíma en langur var hann allavega ekki
  • Fór á Roger Waters tónleika með Jóa og Eiríki, frábærir tónleikar.. þeim verður seint gleymt. p´s. Jói? hefuru þorað að fara eitthvað á Pizza Hut nýlega??
  • Stöð í stöð, ég og Maggi fórum á ballið og hittum ömmu mína og frænku (systur pabba) á djamminu.. viiiiiiirkilega einstakt allt saman
  • Mamma henti blaði í hausinn á mér og á því stóð að 5 pláss væru laus til Spánar með veraldarvinum og hringdi strax og var svo heppin að fá að fara ásamt Hófí og fleiru frábæru fólki frá Íslandi! Við hittum eignuðumst marga vini útá Spáni frá Eistlandi, Svíþjóð, Danmörku, Rússlandi og að sjálfsögðu Spáni. Hólmfríður..? safna öllu þessu fólki sama og halda reunion á sama stað eins fljótt og hægt er.. sakna þeirra svoo :( ok? ook? OK? og btw. takk mamma!
    imageimage
    imageimage
    imageimage
  • Vann í Veiðihúsinu Eyjum (hótel) eftir að ég kom frá Spáni, það var í sjálfu sér ágætt nema það að ég var að fá launin mín rétt fyrir jól!
    image
  • Maggi lærði að sitja hest þegar við fórum í hestaferð yfir skarðið með fjölskyldunni minni og svo var haldið stórafmæli, eða hálfgert ættarmót í Berufirði þegar við komum niður..
  • Ég fór með Nínu í 3ggja manna herbergi og þar breiddum við úr okkur, og verðum aftur saman í herbergi og vonumst til þess að Agnes komist inn á vistina til þess að hún geti líka verið með okkur í herbergi ;)
  • Busaballið var lélegt í ár.. fór ekki einu sinni inná það
  • Var mjög sniðug og fór í fjallgöngu-áfanga til þess að fá eina einingu, mjög átakanleg ganga líkamlega, já og andlega líka, liggur í augum uppi þegar þið skoðið meðfylgjandi myndir8|
    imageimage
    imageimage
    imageimage
    imageimage
  • 1. des var mjög skemmtilegur, góður matur og skemmtiatriðin sömuleiðis, hef samt farið á betra ball..
  • Prófin gengu eins og í sögu þrátt fyrir mikið stress eins og kom fram hér fyrir ofan;)
  • Hvað get ég sagt? örugglega eitt það besta ár sem ég hef upplifað

Ég held ég sé ekki að gleyma neinu markverðu en ég bæti því kannski bara við eftir á ef eitthvað hefur gleymst.. ætla að segja þetta gott í kvöld allavega og hver veit nema næsta blogg verði... einhverntíma á næstunni hehe:$

Góða nótt og sofiði rótt elskurnar8)


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.11.2006 01:52:10 / Arna Silja

Hvurslags hvurslag

1. miðnafnið þitt:

 2. Aldur:

3. Single or Taken:

4. Uppáhalds bíómynd:

5. Uppáhalds lag:

6. Uppáhaldshljómsveit:

7. Dirty or Clean:

8. Tattoo eða göt:

9. Þekkjumst við persónulega?

10. Hver er tilgangurinn með lífinu?

11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?

12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?

13. Besta minningin þín um okkur?

14. Myndir þú gefa mér nýra?

15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:

16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?

17. Getum við hist og bakað köku?

18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?

19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?

20. Finnst þér ég góð manneskja?

21. Myndir þú kerya með mér hringinn í kringum landið?

22. Finnst þér ég aðlaðandi?

23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?

24. Í hverju sefuru?

25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?

26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?

27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?

28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta út?

Allir að svara:klikk:


» 8 hafa sagt sína skoðun

12.11.2006 19:27:51 / Arna Silja

...

Alveg merkilegt hvernig ég veit aldrei hvernig á að byrja að blogga. ok HÆ long time no see, ég ætla ekki að blogga mikið hérna, ætlaði bara að láta vita að ég er að henda myndum hérna inn úr afmælisparty hjá Laufeyju - gottparty, gott party. Í dag fór ég með Magga að horfa á leik á shell, Arsenal vs. Liverpool, sem betur fer vann Arsenal 3-0 svo að ég þarf ekki að hafa Magga pirraðan í allan dag;) En skólinn.. - nei við skulum nú ekkert fara nánar útí það. Ég og Nína keyptum okkur miða á Rockstar tónleikana sem veraða í Reykjavík 30 nóvember ef mig minnir rétt, ég held að það verði bara mjög gaman, nema hvað þetta er á slæmum tíma, tónleikarnir eru á fimmtudegi og fyrsta prófið er á laugardegi svo að við stoppum ekkert lengi í bænum en nú kveð ég í bili... later


» 18 hafa sagt sína skoðun

13.10.2006 00:27:59 / Arna Silja

Yuiis...

uuu, ég er búin að gleyma því hvernig á að blogga. Tölvan mín er búin að láta eins og algjör trunta við mig að undanförnu svo ég lét strauja hana um daginn (takk mamma). Svo eftir straujun lét hún enn verr, fór að koma með svona BÍP hljóð í tíma og ótíma þegar ég var inní kennslustundum sem lét mig verða mjög óvinsæla hjá kennurum, æ vandræðalegt! en svo kom Eiríkur og lagaði það fyrir mig sem betur fer, algjört tölvunörd:P svo það er allt í gúddí núna og ég get byrjað að blogga á fulllllllu aftur.. örugglega? En vá það er svo margt búið að gerast að ég bara man ekki nærri því allt. Skólinn u.þ.b. hálfnaður og ég svoleiðis að drukkna í verkefnum og próflestri og öllu því sem fylgir skólanum. Ég er samt ekkert í svo miklu veseni í sambandi við það(bara pínu). Svo erum við Nína búnar að vera ótrúlega duglegar að fara í rætkina, við verðum orðnar massar um jólin:P Um daginn fórum við líka í fjallgöngu í Borgarfirði til þess að fá einingu fyrir, gistum í skála eina nótt og löbbuðum alveg slatta af kílómetrum og kófsvitnuðum fyrir 1 einingu8| það var alveg þess virði samt það var mjög gaman og ég er meira að segja að pæla í því að setja nokkrar myndir úr göngunni inn hérna til hliðar á eftir ;) Ætti maður að skella sér á ball með á móti sól á Fáskrúðsfirði um helgina? mig langar mjööög mikið til þess allavega, yrði alveg geeeggjað. en ég nenni ekki að blogga meira, ef þið viljið fleiri blogg þá er um að gera fyrir ykkur að vera dugleg að commenta8|:o..............BLESSÓ

» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Klukkan